Röfl dagsins

Ég ætla að halda áfram að röfla um verðmuninn á bensíni og díselolíu hér á landi. Lítrinn af díselolíu er  nú u.þ.b. 17 kr. dýrari en bensínlítrinn og eins og ég talaði um í síðasta röfli þá er þar víst heimsmarkaðsverði um að kenna. Ég veit að þessi verðmunur er ekki séríslenskt fyrirbrigði, t.d. var verðmunurinn svipaður í Bretlandi síðast þegar ég vissi, en einhverjar þjóðir, t.d. Danir, hafa tekið það upp hjá sér að sporna við þessari þróun með aðgerðum af hálfu ríkisins. Í Danmörku er dísellítrinn enn heldur ódýarari en bensínlítrinn, svona eins og manni finnst að það eigi að vera.

Ég hef í 3 ár átt sparneytna díselbíla. Fyrst Skoda Octavia og síðan Volkswagen Touran. Þessir bílar eru mjög sparneytnir, eyða á við japanskan smábíl, en eru þrátt fyrir það fullbúnir fjölskyldubílar. Vegna stærðar sinnar eru þeir talsvert öruggari en japanskir smábílar, skyldi maður ætla a.m.k., og eins hef ég heyrt sérfræðinga halda því fram að þeir mengi minna en smábílarnir. Jafnvel álíka lítið og hybrid og prius og hvað þessir umhverfisvænu tískubílar heita. En nú er svo komið að það er tæpum þúsundkalli dýrara fyrir mig að fylla bílinn en fyrir Yaris-eiganda! 

Ég hefði haldið að það væri af hinu góða fyrir íslenskt samfélag að sem flestir ættu örugga, sparneytna og umhverfisvæna bíla, að svo miklu leyti sem bíll getur verið umhverfisvænn Wink, og mér skilst að það hafi dönsk stjórnvöld einmitt ályktað að væri gott fyrir danskt samfélag og þessvegna tekið völdin af hinu illræmda heimsmarkaðsverði og jafnað stöðuna milli díselolíu og bensíns. Um óákveðinn tíma, eða þar til jafnvægi næst á heimsmarkaði.

Megum við eiga von á því að íslensk stjórnvöld geri eitthvað í þessa veru? Tja........nei.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Ég tek undir þetta röfl heilshugar, á reyndar ekki dísilbíl, en er að vinna í því, einfaldlega vegna þess að það er svo margt miklu skemmtilegara og betra við þá m.a. eyðslan.

En það verður eflaust einhver bið á því að tekið verði á þessum málum hér, því miður

Eiður Ragnarsson, 19.6.2008 kl. 18:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband