VG

Það er greinilega dálítið flókið að vera í VG. Stefnan er einhvernveginn á reiki virðist vera. Allavega fer mesta púðrið í það hjá þeim þessa dagana að leiðrétta hver annan.

Fyrst segir Katrín Jakobsdóttir að það eigi að hækka skatta og lækka laun. Það var víst ekki rétt eftir henni haft - þótt hún hafi sagt það. Síðan segir Atli Gíslason að það komi ekki til greina að hálfu VG að taka ESB-málin á dagskrá. Það var víst einhver misskilningur líka hjá honum. Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld sagði Kolbrún Halldórsdóttir síðan að olíuleit væri andstæð stefnu flokksins. Stuttu síðar kom yfirlýsing frá flokknum þess efnis að VG legðist ekki gegn olíuleit á Drekasvæðinu svokallaða.

Ekki myndi mig langa að starfa með flokki sem getur ekki einu sinni starfað með sjálfum sér. Ég held að Samfylkingin ætti að hugsa aðeins út í það áður en lengra er haldið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Persónulega ... finnst mér algjörlega út í hött að ætlast til þess allir einstaklingar innan sama flokks séu á sömu skoðun. Þú fylgir flokki sem fylgir þinni stefnu en þú hlítur að vera einhverfur ef þú ert nákvæmlega sömu skoðun og allur flokkurinn. Þessi svokallaði flokksagi fer í taugarnar á mér, mér finnst að skoðannaskipti séu í af hinu góða ef fólk er með rök fyrir sínu máli.

Brynjar Jóhannsson, 22.4.2009 kl. 22:26

2 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Ég er algjörlega sammála þér. Enda er ég ekkert að tjá mig um það. Það hefði líka verið allt í lagi ef Atli hefði sagt að hann væri alfarið á móti því að setja ESB-málin á dagskrá og Kolbrún hefi sagt að hún væri á móti olíuleit. En Atli sagði að VG vildi ESB ekki á dagskrá og Kolbrún sagði að VG væri á móti olíuleit. Í báðum tilvikum hefur flokkurinn hlaupið til og reynt að leiðrétta þau, þannig að þetta mál er öðru vísi vaxið eins og þú sérð.

Heimir Eyvindarson, 22.4.2009 kl. 22:38

3 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

VG er ekki hreinstefnubatterí á borð við restina af fjórflokknum. Á mínu heimili er sjaldnast einhugur um það hvað væri æskilegast að bera á kvöldverðarborðið. Oftast fer það nú samt þannig ennþá sem betur fer að við setjumst öll saman og borðum þann mat sem á borðum er. Ég treysti VG til að snúa saman bökum þegar þess gerist þörf en leyfa persónulegum skoðunum flokksmanna að koma fram í umræðunni þess á milli. Ég hef satt að segja minnstar áhyggjur af fjölbreyttir skoðanaflóru innan VG í komandi brælu. Ég sef hins vegar heldur óværum svefni þessa dagana vegna populisma Samfylkingarinnar sem mun síst skána í vaxandi ölduhæð. þar erum við að tala um breytilegan möttulhalla dag frá degi hreinlega.

Soffía Valdimarsdóttir, 22.4.2009 kl. 23:45

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Málið er heimir... að þau bæði gátu að vissu leiti talað í nafni flokksins..

Atli gat sagt þetta því Vg er á móti inngönu í esb og hefur það margsinnis komið fram

kolbrún gat einnig sagt þetta varðandi olíuborun.. því vg er umhverfisgrænn flokkur. Hitt er að ég veit að Kolbrún talar ekki fyrir hönd allra VG í þessu máli og veit ég að .... margir innan vg eru hlintir því að þjóðaratvkæðagreiðsla um inngöngu í esb sé málið og það megi fara í aðildarumræður og sjá hvað kemur út úr þeim... en sjá síðan til.

ég er sammála þér að mér finnst fáranlegt að fólk talar ekki fyrir sig en ekki fyrir hönd flokksins. 

Brynjar Jóhannsson, 23.4.2009 kl. 00:01

5 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Já Brynjar.....þetta er að vissu leyti rétt hjá þér. En afhverju hljóp flokksforystan þá til og leiðrétti málflutning þeirra beggja?

Heimir Eyvindarson, 23.4.2009 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband