Langloka um Liverpool

Það er hálf súrt að halda með Liverpool þessa dagana. Ekki vegna þess að það gangi eitthvað óskaplega illa hjá liðinu, heldur fyrst og fremst vegna andans sem virðist ríkja í herbúðum félagsins.

Í gær mátti lesa á netmiðlum að eigendur félagsins hefðu rætt við Jurgen Klinsmann um að taka við félaginu færi svo að Rafael Benites hætti, eins og það var orðað, og það finnst mér enn eitt dæmi um óeðlilega framkomu eigenda félagsins í garð framkvæmdastjórans - sem hefur að mínu mati gert heilmikið fyrir félagið og er fullfær um að koma því í allra fremstu röð fái hann til þess frið. En friðinn virðist hann ekki ætla að fá, því miður. 

Ég held að það hljóti að vera eitthvað að hjá félagi sem er svona á tauginni alla daga. Auðvitað mætti ganga betur en það er nú ekki eins og himinn og jörð séu að farast! Við erum enn með í meistaradeildinni og bikarkeppninni og í deildinni erum við í 4.sæti, höfum tapað 9 stigum meira en toppliðið. Það er þriggja leikja sveifla, það eru nú öll ósköpin!

Oftast nær taka toppliðin út slæman kafla einhverntíma á tímabilinu og ég leyfi mér að vona að sá kafli sé nú búinn hjá okkur, en ekki toppliðunum þremur. Deildin vinnst oftast á 80-90 stigum og við getum enn náð því, að því gefnu að slæmi kaflinn sé nú að baki. Það er heldur ekkert óalgengt að meistaraliðin tapi 4-6 leikjum, við höfum tapað tveimur. Að vísu eru jafnteflin orðin allt of mörg, en það er algjör óþarfi að fara á límingunum yfir gengi liðsins. Það er á algjörlega réttri leið, liðið spilar mun skemmtilegri fótbolta en undanfarin ár og við erum komnir með heimsklassa striker í Fernando Torres. Leiðin liggur bara upp á við - ekki spurning! Nú þarf bara að rétta úr sér og hætta að væla!

Þessi hræðilegi kafli liðsins er ekkert til að missa svefn yfir og þessvegna finnst mér sorglegt að sjá hversu taugaóstyrkur Benites er orðinn. Hann er farinn að minna óþægilega á Houllier kallinn, fer í vörn þegar fréttamenn þjarma að honum o.s.frv. Það finnst mér benda til þess að eitthvað sé að hjá klúbbnum. Má ég líka rifja það upp að Houllier kallinn kom Lyon í fremstu röð í Evrópu eftir að hann hrökklaðist frá Liverpool, þannig að honum var klárlega ekki alls varnað þó honum gengi illa með Liverpool liðið. Líklega þarf Jóhann Ingi bara að taka það að sér að berja sjálfstraustið í klúbbinn á ný Wink.

Auðvitað hefði ég ekkert á móti því að sjá Jurgen Klinsmann, Jose Mourinho eða einhvern álíka töffara taka við liðinu, og líklega er staða Benites orðin það erfið eftir það sem á undan er gengið í samskiptum hans og eigenda liðsins að hann mun ekki ná að berja í liðið þann þrótt sem upp á vantar til að allt smelli saman, en það segi ég alveg satt að mér þætti mikið vænna um að liðið yrði enskur meistari undir stjórn Benites en t.a.m. Mourinho. 

Ekki það að ég sé einhver sérstakur aðdáandi Benites, finnst hann raunar oft stórundarlegur ef út í það er farið, en mér finnst einfaldlega óþolandi að fylgjast með þeirri móðursýki og taugaveiklun sem virðist ríkja á Anfield. Afhverju í ósköpunum þurfum við að vera með bakið upp við vegg í bullandi vörn eins og staða liðsins er í dag? Staðreyndin er sú að liðið er eitt það besta í heiminum á góðum degi, en góðu dagarnir eru enn sem komið er ekki nægilega margir. Það skrifa ég eingöngu á of lítið sjálftrausts félagsins í heild sinni.

Í þessu sambandi hefur oft verið litið til Manchester United og áranna sem Alex Ferguson hefur verið þar við stjórnvölinn. Man U. missti ekki trúna á að kallinum tækist að koma klúbbnum í fremstu röð, eftir mörg mögur ár, jafnvel þó liðið endaði í 11. sæti þriðja tímabilið sem hann stjórnaði því og í því þrettánda tímabilið þar á eftir! Það var síðan ekki fyrr en á 6.tímabilinu sem honum tókst loks að gera liðið að meisturum. Og þá var ekki aftur snúið.

Benites er nú á sínu fjórða tímabili með Liverpool. Í fyrra endaði liðið í þriðja sæti í deildinni og komst í úrslit meistaradeildarinnar. Er það svo ömurlegur árangur að réttlætanlegt sé að kalla eftir afsögn framkvæmdastjórans? Stjóra sem hefur á sínum stutta ferli með liðið landað evrópumeistaratitli, enskum bikar og stórbikar Evrópu? 

Lið á borð við Liverpool á að bera sig betur.   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Kátir karlar á mínu heimili þessa dagana

Mesta svekkelsið hjá rafvirkjanum er að SKY sýnir ekki laugardagsleiki  en ég er ekkert voða svekkt yfir því

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 15.1.2008 kl. 16:53

2 identicon

Fótbolti já. Er það eitthvað ofan á brauð

Bryndís R (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 19:42

3 Smámynd: Anna Sigga

Jurgen Klinsiblings...  sko eins og svo oft áður hefur komið fram þá er ég náttúrulega man.utdstúlka en Rafael Benites hefur svo sannarlega alveg verið að skila sínu að mínu mati, ég meina maður hefur sína ups & downs en hver er svo blessunarlega (eða ekki) laus við það!?! Auðvitað á ekki smá bakslag að merkja endalok.

 Annars nenti ég nú ekki nema bara að stikla á stóru, þannig að ef ég er alveg útúr kortinu heimskuleg hérna þá er það bara smá tímamisskilnungur.

 Bið að heilsa í Húrdí :)

Anna Sigga, 16.1.2008 kl. 15:39

4 identicon

Sammála öllu hér - 100% sammála .... EN .... ég er orðin leið á öllum jafnteflunum í úrvalsdeildinni. Þeir hefðu mátt skora einhver af þessum 5 mörkum sem þeir skoruðu á móti Luton í leikjunum í deildinni frekar. Segi sonna, vil sjá fleiri mörk hjá þeim 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband