Auðvitað!

Þetta er nú meira grínið Sick.

Við erum eins og kúgaðar kerlingar á leið heim úr Kvennaathvarfinu, sem hlaupa rakleiðis í fang fulla kallinum sínum eftir að hann hefur barið þær og misþyrmt.

Sveiattan! 


mbl.is Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Þangað leitar klárinn sem hann er kvaldastur. 

Þú segir nokkuð, held að það sé heilmikið til í þessu hjá þér.  Allavega er þetta undarlegt svo ekki sé meira sagt. Sjálfstæðisflokkurinn hefur bæði auðmýkt okkur og nánast húðstrýkt, en meira en fjórðungur þjóðarinnar heldur áfram að styðja hann.

Þetta er gott rannsóknarefni fyrir mann og sagnfræðinga.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 5.3.2009 kl. 19:06

2 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Já! Ég skora á fræðinga að rannsaka þetta. Sumir hafa talað um að þjóðin þjáist af Stokkhólms-heilkenninu, mér finnst margt til í því. Það er allavega alveg ljóst að þjóðin gengur ekki heil til skógar - talsverður hluti hennar a.m.k.

Heimir Eyvindarson, 5.3.2009 kl. 19:20

3 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Ákveðinn skóli innan stjórnmálafræðanna skýrir þetta með því að Flokkurinn sé hliðstæður stóru sósíaldemókratísku flokkunum á Norðurlöndunum. Hann hafi fylgi jafnaðarmanna auk hægri fylgisins. Sé þannig ekki svartasta íhald.

Sjálfur segist hann vera flokkurinn sem sameinar stéttirnar, stétt með stétt segja þeir.

Ég held að Flokkurinn hafi bara í gegnum árin haft flottasta PR fólkið á sinni launaskrá.

Nú eða þá að það er bara svona mikið af hálfvitum á Íslandi. Nema hvoru tveggja sé.

Alla vega snýst þetta voða mikið um að lúkka rétt í víðum skilningi - og fólk vill upp til hópa frekar gilja Barbí en Gilitrutt ekki satt?

Fock inner beauty og allt það!

Soffía Valdimarsdóttir, 5.3.2009 kl. 19:41

4 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Heimir Eyvindarson, 5.3.2009 kl. 22:51

5 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

Þú veist að rétt bindi og jakkaföt vinna stundum kosningar - hér á landi á ég við.  En ég er sammála þér kollegi ... við göngum ekki alveg á öllum þegar kemur að pólitík. Sjáðu nú til dæmis hörmungina hjá Samfylkingunni fyrir norðan. Ég er ennþá að klóra mér í hausnum yfir röðinn á listanum ... 

Pálmi Gunnarsson, 7.3.2009 kl. 18:34

6 identicon

Það virðist sem þorrinn sé búin að gleyma ástandinu.  Það er enginn stemning fyrir endurnýjun, eingöngu verið að opna dyr fyrir næstu þrep í sleikipinnaröðinni í flokkunum.  Samfylkingin lítur ekki á sem þau hafi nokkuð með ófarirnar að gera, ekki neitt.  Vinir mínir í framsókn eru að handvelja á lista í Reykjavík þar sem t.d Vigdís Hauksdóttir telst vera "ný og fersk"!!  Bull.  Annars virðist almúginn búinn að gleyma kreppunni.  Hvar er allt verðlagseftirlitið sem átti að vera með verslunninni sem dæmi?  Nú hefur gengið styrkst um ca 30% á þessu ári(jafnvel meira), laun standa í stað eða lækka, en vörurnar hækka!!  Kaupmenn hækkuðu allt hjá sér í haust í ljósi aðstæðna, en að vanda hefur ekkert gengið tilbaka.  Kannski ekkert skrýtið,það er engin pressa á þeim!  Þetta er sama syndrom neytenda og með kúguðu kellinguna, láta níðast á sér!

Rilli (IP-tala skráð) 8.3.2009 kl. 08:33

7 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ef karlinn hefur lamið kerlinguna hleypur hún beint heim til hans ef aðrir karlar virðast verri kostir. Það er nú svo, Sjallinn er ekki beint spennandi, en miðað við hvað er í boði er ég ekki frá því að hann sé... ja, allavega langt frá því að vera versti kosturinn.

Ingvar Valgeirsson, 16.3.2009 kl. 12:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband