Geir með puttann á púlsinum

Geir Hårde segir í viðtali við AP fréttastofuna í dag að hann telji sig ekki bera neina ábyrgð á því hvernig komið er fyrir íslensku þjóðinni. Hann segist líka telja það vera hlutverk sitt og ríkisstjórnar sinnar að leiða þjóðina út úr þeim vanda sem að henni steðji um þessar mundir.

Ennfremur tekur hann fram að til þess hafi hann traust umboð íslensku þjóðarinnar! Máli sínu til stuðnings vísar hann til niðurstaðna atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu á ríkisstjórnina, sem borin var upp í vikunni!!!

Þá höfum við það. Geir og hans ríkisstjórn njóta fyllsta trausts þjóðarinnar til að leiða þær "björgunaraðgerðir" sem nú standa yfir, af því að þessi sama ríkisstjórn kaus að fella ekki sjálfa sig í atkvæðagreiðslu á Alþingi! 

Var einhver að tala um raunveruleikafirringu?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þann 3 júli 2007 var smjör búið að hækka um 95% iBandarikjunum heimsmarkaðsverð á korni umca100% bensin gallon farið að hækka og pirringur farin að gera vart við sig ,kanar lánuðu lánuðu til Húsnæðiskaupa ,fólk farið að lenta i vandræðum ,Húsnæðislánin varð of stór biti 'asamt gjaldeyrisbraski sem varð seinna og kom af stað þessu hruni ásamt kosningabaráttu Demókrata i Usa sem varð okkur um megn,enn snilli okkar ágæta Forsætisráðherra og Gullkistan umhverfis landið og Kristinn trú mun leiða okkur á góðan stað fyrr heldur en margir halda sérstaklega öfga vinstri menn sem aldrei hafa skoðað göturnar eru alltaf á námslánum og kasta matnum i kreppu .sökudólgurinn er ukall sem var á móti eyðileggingum  á fallegum bújörðum i sumarbústaðalönd,sorry.

ukall (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband