Hreint ekki svo ligeglaðir

Ég heyrði í útvarpinu áðan að það fer í taugarnar á meirihluta dönsku þjóðarinnar að nýbakaðar mæður séu að þvælast inni á kaffihúsum með börnin sín. Ekki nóg með það heldur er meirihluti þjóðarinnar hlynntur því að brjóstagjafir verði hreinlega bannaðar á kaffi- og veitingahúsum.

Hvað er eiginlega að verða með þessa frændur vora sem fyrrum voru svo frjálslyndir, einkum og sér í lagi hvað varðaði brjóst og þess háttar útbúnað?

Hopsasa på sengekanten hvað!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband