Óheppilegur skyldleiki

Í vikunni heyrði ég þemalag Ljósanætur í Reykjanesbæ, eftir Jóhann Helgason sem á að mínu mati mörg af betri dægurlögum íslenskum, t.d. lagið Söknuð sem Jóhann hefur nú kært einhvern meðalhressan norðmann fyrir að hafa stolið frá sér og skýrt You raise me up. Norsarinn kom af fjöllum, enda stal hann írska þjóðlaginu Oh Danny boy við gerð upprisusöngsins, og virtist sloppinn fyrir horn með það þegar Mr. Helgason frá Íslandi birtist með brjálæðisglampa í bláhvítum augunum og heimtaði pening, eða fé eins og slíkt er nefnt í Keflavík (sem í dag er bara hverfi í Reykjanesbæ Jóhann Wink).

Ljósanæturlagið er nú ekki það besta sem ég hef heyrt frá Jóhanni, enda garðurinn heldur hár, en það sem sló mig dálítið óþægilega við fyrstu hlustun var hvað lagið er merkilega líkt laginu Stúlkan mín sem Deildarbungubræður kyrjuðu fyrir u.þ.b. 30 árum og Skítamóralsmenn endurgerðu fyrir 10 árum. Það er að vísu í annarri tóntegund, en versin eru sláandi lík. Mér finnst í það minnsta meiri skyldleiki með þessum tveimur lögum en með Söknuði og You raise me up Cool.

Ég er alls ekki að væna Jóhann um þjófnað, heldur aðeins að benda á að óhöpp eins og þetta geta hent bestu menn. Meira að segja afburða lagahöfunda eins og Jóhann Helgason.

Ef ég nennti að spá í hvernig maður setur inn tónlistarspilara á síðuna þá gæti ég leyft ykkur að heyra tóndæmi, kannski einhver góðviljaður bloggvinur kenni mér að gera það.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mig langar að heyra. Þú ferð í stillingar, svo útlit, svo síðueiningar og dregur tónlistarspilarann inn í dálkinn, annaðhvort vinstri eða hægri eftir því hvort þú vilt. Síðan velur þú lög og nýtt lag og málið er dautt  Vona að þetta gagnist.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband