Radio útvarpskönnun

Plúsinn.is er fyrirbæri sem sendir mér stundum póst. Oftast til að reyna að fá mig til að kaupa Herbalife og telja mér í leiðinni trú um að ég geti orðið moldríkur á því, en stundum til að kanna afstöðu mína til ýmissa mála sem á þjóðfélaginu brenna.

Sem dyggur þjóðfélagsþegn tek ég yfirleitt samviskusamlega þátt í þessum skoðanakönnunum og oftast nær er ég nú ekki svo skyni skroppinn að ég skilji ekki hvað verið er að tala um, en í dag sendi Plúsinn mér könnun sem heitir radio útvarpskönnun! Það er nú alveg á mörkunum að ég skilji hvað það á að fyrirstilla...............einhver?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband