Birgir Ármannsson...

...tjáir sig um það í dag að honum þyki uppsagnir seðlabankastjóranna og umræður um pólitískar hreingerningar í stjórnkerfinu hafa á sér afar ógeðfelldan blæ!!!

Eins víkur hann að hinni meintu pólítísku heift sem margir sjálfstæðismenn hafa haft á orði að stjórni gjörðum Samfylkingarinnar í þessum málum!

Það er dálítið merkilegt með Sjálfstæðisflokkinn að í öðru orðinu tala menn þar á bæ um að í fráfarandi ríkisstjórn hafi ekki verið málefnaágreiningur varðandi Seðlabankastjórnina, en svo þegar á að fara að taka til hendinni þá verður allt vitlaust! Frjálshyggjumannvitsbrekkur flokksins koma nú fram hver upp af annarri og lýsa vanþóknun sinni á þeim æðibunugangi nýrrar stjórnar að ætla sér að setja sjálfan Davíð Oddsson af!

Meira að segja hafa sumir leyft sér að nefna það hversu dýrt það yrði fyrir þjóðarbúið að segja honum upp, því hann fái þá svo mikið í biðlaun! Jæja Birgir og þið allir. Eigum við að ræða eitthvað hvað það hefur kostað okkur að hafa hann í þessu embætti? Hver er nú ábyrgur fyrir því?

Ég held að Birgir og hans félagar ættu að draga djúpt andann áður en þeir fara að tala um kostnað. það er allavega alveg ljóst að þeir kunna ekki að skammast sín, og hafa þeir þó ærna ástæðu tilSmile.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Þetta er eiginlega bara grín, hvað Sjálfstæðismenn eru duglegir við að hnýta í þetta, hlut sem þá langaði til að gera en gátu ekki vegna valda Davíðs í eigin flokki.

Nú hugsa þeir sem svo að það sé vænlegast til metorða að hrópa á þetta verk sem mest svo að þeir eigi stuðnings Davíðs vísan ef á reynir.

Annað sem er umhugsunarefni, er það, hvernig Sjálfstæðismenn hefðu brugðist við við sömu aðstæður, en þeirra viðbrögðu hefðu verið nákvæmlega hin sömu á allan hátt hefðu þeir staðið frammi fyrir sömu hlutum og þessi ríkisstjórn gerir nú.

Og að nota kostnaðinn sem rök...  Það er bara fyndið hjá okkur sem berjumst við 3.000.000.000.000.- króna skuld vegna athyglisleysis ýmissa sem áttu að fylgjast með betur..(gleymdi ég kanski einhverjum núllum???)

Eiður Ragnarsson, 4.2.2009 kl. 11:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband