Nýi Kjartan?

Einar Bárðarson vinur minn er byrjaður að vinna ímyndarvinnuna sína fyrir Kjartan Ólafsson alþingismann Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi. Það er greinilegt að það á að láta líta svo út að Kjartan sé maður fólksins, sparsamur og ábyrgðarfullurWink.

Í morgun birtist frétt þess efnis að hann hygðist ekki bruðla með fé í kosningabaráttu sinni, hann hefði ákveðið að opna kosningaskrifstofu í bílskúrnum hjá sér. Í gær skrifar Kjartan síðan langa grein þar sem hann mærir sjálfan sig fyrir að hafa mælt með aukinni sláturtöku landans á því herrans ári 2007!

Þetta er álíka hallærislegt útspil og þegar þingmenn Alþýðubandalagsins klæddu sig í gallabuxur og fóru að taka strætó fyrir einhverjar kosningarnar á 9. áratugnum Sick.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Tómasson

Og hvað hafa Samfylkingarmenn gert á móti?

Heimir Tómasson, 25.2.2009 kl. 11:58

2 Smámynd: Anna Sigga

Mér finnst reyndar algjör snilld að dressa sig uppí Wranglers og skella sér í strætó! Þvílíkir húmoristar Alþýðubandalegsmenn ;)

Verð að taka undir spurningu nafna þíns hér að ofan - og hvað hefur samfylkingarfólk gert?

Ág sat nú fund með samfylkginarfólki síðastliðinn fimmtudag á Bifröst og ræddi þar málin við ekki ómerkara fólk en Guðbjart forseta Alþingis, Dag B., Karl V., Önnu P. og Önnu K. og þau voru misjöfn eins og þau voru mörg. Eitt áttu þau þó sameiginlegt og það var að bjóða uppá heillandi og fallegar umbúðir en ekki alltaf í miklum gæðum.

Anna Sigga, 25.2.2009 kl. 13:04

3 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Hehehe, ég ætla nú ekkert endilega að fara að taka upp hanskann fyrir Samfylkinguna - enda snerist þessi litla bloggfærsla mín ekki á nokkurn hátt um það. Ég var nú bara að skjóta aðeins á fyrrum nágranna minn Kjartan og góðan félaga minn Bárðarson . Það er ekkert víst að þetta klikki hjá þeim.

Heimir Eyvindarson, 25.2.2009 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband