Hvernig getur einn maður verið svona heppinn?

Lánið hefur svo sannarlega leikið við mig í þessari viku. Samkvæmt tölvupóstum sem ég hef fengið hef ég unnið þrisvar sinnum í Hollenska lottóinu. Milljón evrur í hvert sinn! Og þar sem ég sit núna fyrir framan tölvuna að skoða allskonar dót sem ég keypt fyrir þennan óvænta aur, fæ ég tilkynningu um að ég hafi unnið í svissneska ríkislottóinu. 1 milljón evrur! Jahérna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Til lukku með þetta, hafði alltaf mikla trú á því að þú þyrftir ekki að lifa lengi á kennaralaununum.

Eiríkur Harðarson, 26.8.2008 kl. 00:08

2 identicon

Vá! mikið eiga þeir af milljónum. Ég fékk þrjá vinninga frá Sviss og alla í gær! Magnað hvað við erum heppin!

Heiðrún Dóra (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 09:34

3 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Hæ ríki maður, viltu vera memm?

Soffía Valdimarsdóttir, 26.8.2008 kl. 14:17

4 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Þú þarft bara að gefa upp kreditkortanúmerið

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 26.8.2008 kl. 22:46

5 Smámynd: Guðmundur M Ásgeirsson

TIL LUKKU!!!

Þýðir þetta að þú farir í ríkið fyrir helgina? ;)-

Guðmundur M Ásgeirsson, 26.8.2008 kl. 23:32

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Einkennilegt hvað maður vinnur oft í lottói sem maður á ekki miða í...  Ég er löngu orðin tugmilljónamæringur á þessu öllu saman! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.8.2008 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband