Færsluflokkur: Bloggar
...fór mikinn í Íslandi í dag áðan.
Það er hreinlega hjákátlegt að heyra hann, og Geir líka, stagast í sífellu á því að efnahagsvandinn sé ekki heimatilbúinn! Gott og vel. Það kreppir víðar að, við skulum ekki gera lítið úr því, en það er algjör lítilsvirðing við almenning í landinu að segja að við höfum ekkert haft með það að gera hvernig staðan er.
Hverjir hleyptu bönkunum inná fasteignamarkaðinn?
Hverjir settu krónuna á flot fyrir 7 árum?
Hverjir skelltu skollaeyrum við aðvörunum erlendis frá?......og svo mætti lengi telja.......
Voru það ekki við?
Við þurftum enga utanaðkomandi hjálp við að sukka frá okkur ráð og rænu, það er bláköld staðreynd málsins.
Það er líka staðreynd að ef t.d. Davíð hefði ekki staðið í vegi fyrir því að umræða um ESB og upptöku evru hefði fengið eðlilega meðferð á Alþingi í hans valdatíð væri staða okkar talsvert betri. Þessvegna er afskaplega þreytandi að heyra þá kumpána sífellt blöðruselast eitthvað út í loftið með það að lýðskrumarar haldi því fram að evran sé töfralausn. Að einhverjir hálfvitar séu sýknt og heilagt að halda því fram að við eigum bara að stökkva í ESB og þá reddist allt!
Afsakiði meðan að ég æli, en ég hef ekki heyrt nokkurn einasta mann halda slíkum þvættingi fram.
Hinsvegar hafa margir bent á þá staðreynd að ef við hefðum borið gæfu til að leggja krónunni og taka upp evru áður en þetta ástand skapaðist á heimsmarkaði væri staða okkar allt önnur. Það er afskaplega einfalt reikningsdæmi, sem óþarfi er að snúa út úr. Ekki hefur evran fallið um tæp 40% frá áramótum, svo mikið er víst.
Það hefur krónan hinsvegar gert og það hlýtur að vera leyfilegt að tala um það án þess að gamla, grautfúla bláa höndin skjótist á loft.
![]() |
Davíð segir að krónan muni ná sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 18.9.2008 | 23:58 (breytt 19.9.2008 kl. 00:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Í dag hefur göngu sína nýr dagskrárliður hér á síðunni, en það er slagorð dagsins.
Íslensk fyrirtæki leggja mikið upp úr slagorðum, sum eru góð; Homeblest - gott báðum megin, Lambakjöt á diskinn minn og Virkjum Bessastaði - svo dæmi séu tekin.
Önnur eru verri. T.d. Unik - kostar ekkert nema almenna skynsemi og Ein ferð, betra verð!
Slagorð dagsins er að mig minnir úr smiðju Einars Bárðarsonar:
Þar sem leitin byrjar og endar.
Það er kannski vert að spyrja hvort einhver man hvaða staður notaði þetta slagorð á sínum tíma?
Bloggar | 18.9.2008 | 09:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Jón Bjarki Bentsson sérfræðingur á greiningardeild Glitnis segir á mbl.is í dag að heimilin í landinu séu afar vel undirbúin fyrir kreppuna. Mér er stórlega létt.
Bloggar | 17.9.2008 | 09:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
...eru hagsmunasamtök íslenskra atvinnurekenda. Eflaust er tilgangur samtakanna göfugur og sjálfsagt láta þau eitt og annað gott af sér leiða, en þau kynni sem ég hef af samtökunum eru einungis tengd yfirlýsingum sem þau senda frá sér. Þar sem um stór og voldug samtök er að ræða rata slíkar samþykktir og yfirlýsingar nefnilega oftar en ekki í fréttirnar.
Maður skyldi ætla að í hagsmunasamtökum af þessu tagi væri að finna alla helstu viðskiptasnillinga landsins, en yfirlýsingar samtakanna bera þess þó ekki alltaf merki. Á dögunum komust samtökin t.d. að þeirri niðurstöðu að réttast væri að leggja Íbúðalánasjóð niður! Ég sem hélt að m.a.s. hörðustu frjálshyggjukjánarnir hefðu vit á því að láta kreppuna, sem að talsverðum hluta skapaðist af því hvernig bankarnir gengu um fasteignamarkaðinn, líða hjá og gleymast áður en þeir færu að þvaðra þetta á nýjan leik!
Til upprifjunar: Bankarnir komu inn á fasteignamarkaðinn árið 2004, ef ég man rétt, og þeirra meginmarkmið var leynt og ljóst að bola Íbúðalánasjóði út af markaðnum. Boðið var upp á rúmlega 4% vexti og hámark lána hækkaði umtalsvert. Áhrifamenn af hægri vængnum kepptust síðan við að koma í fjölmiðla og benda fólki á hversu vel bankarnir yllu þessu nýja hlutverki sínu og krafan um að leggja niður Íbúðalánasjóð varð ansi hávær. Fyrir einhverja Guðs mildi kom þó ekki til þess.
Við þessa kröftugu innkomu bankanna varð sprenging á fasteignamarkaði og húsnæðisverð rauk upp úr öllu valdi. Enginn græddi í raun á því nema bankar og fasteignasalar, sem þóttu nú með fínni mönnum. Svo fínir að myndir af þeim birtust reglulega á forsíðum glanstímarita! Þessi brjálæðislega þensla sem við munum vonandi öll eftir varð svo skyndilega að kreppunni sem við búum við í dag og hvernig standa bankarnir sig þá á fasteignamarkaði? Þeir halda að sér höndum, lána nánast ekki neitt og aukinheldur er nú smáa letrið að koma í ljós. Lán sem tekin voru á rúmlega 4% vöxtum á sínum tíma bera nú skyndilega orðið allt upp í 8% vexti og sitthvað fleira skemmtilegt mætti nefna.
Ég er einn af þeim sem tók fasteignalán hjá banka haustið 2004 og ég man hvað gylliboð þjónustufulltrúans sem reyndi að sannfæra mig um að taka lán á breytilegum vöxtum hljómaði spennandi, á tímum bullandi góðæris. Sem betur fer hafði ég rænu á að taka ekki sjénsinn á því, en eflaust hafa margir hoppað á þetta ómótstæðilega tilboð.
Ég held að allir sem vilja skoða málin af sanngirni hljóti að sjá það að bankarnir eru ekki tilbúnir til að taka við hlutverki Íbúðalánasjóðs. Bitur reynslan sýnir það svart á hvítu. Eins má benda fólki á reynslu Bandaríkjamanna af slíkum æfingum. Þessvegna finnst mér furðulegt að sérfræðingar í viðskiptum skuli leggja aðra eins vitleysu til.
En þá verður mér hugsað til greiningadeilda bankanna. Þar skyldi maður ætla að helstu sérfræðingar landsins í efnahagsmálum störfuðu. Þeir sáu kreppuna aldrei koma fyrr en hún skall í andlitið á þeim. Afhverju enn er leitað álits hjá því fólki er mér fyrirmunað að skilja.
Bloggar | 13.9.2008 | 20:49 (breytt kl. 20:51) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | 13.9.2008 | 14:15 (breytt kl. 14:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 11.9.2008 | 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 4.9.2008 | 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hatur Björns Bjarnasonar á Baugi er alþekkt og nú hefur það tekið á sig enn eina skrípamyndina. Á bloggsíðu sinni sér Björn ástæðu til þess að gera lítið úr fjármálaviti Baugsmanna, í kjölfar þess að Nyhedsavisen danski, sem Baugur átti hlut í, lagði upp laupana.
Ég er ekki aðdáandi Baugsfeðga eða þeirra veldis, er reyndar alveg sama hvað þeir aðhafast, en ég verð að segja að mér finnst heldur ósmekklegt af ráðherra í ríkisstjórn Íslands að hlakka yfir óförum íslenskra fyrirtækja á opinberum vettvangi!!! Finnst öllum það í lagi?
Bloggar | 2.9.2008 | 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mig hefur lengi grunað að Árni Mathiesen væri vitleysingur. Nýlegt myndskeið sem sýnir hann, Geir Haarde og Einar Kr. Guðfinnsson horfa saman á handboltaleik renndi t.d. stoðum undir þann grun minn, en þar mátti sjá að Árni -sem er af mikilli handboltaætt- var talsvert lengur að fatta hvað var í gangi á vellinum en vestfirðingurinn Einar Kr. og norðmaðurinn Geir!
Rétt í þessu var ég síðan að lesa frétt á Vísi, sem fjallar um hlut Árna í Byr og þar kemur margt athyglisvert fram. Framan af fréttinni styrktist ég enn í trúnni um að maðurinn gengi ekki alveg heill til skógar vitsmunalega séð. Væri kannski svona febrúar, eins og fólk sem vantar aðeins í var stundum kallað í gamla daga.
T.d. kemur fram í fréttinni að fyrir þremur árum tilkynnti Árni með viðhöfn að þeir tímar væru liðnir að stjórnmálamenn væru að vasast í fjármálastofnunum. Samt sem áður kemur nú í ljós að hann er með puttana á bólakafi í Byr. Fádæma vitleysa hugsaði ég, og gott ef það fussaði ekki í mér líka.
En viti menn. Svo bregðast krosstré o.s.frv.........í lok fréttarinnar kemur Árna firnasterkur til baka, með svari sem mátar mig og alla þá aðra sem hafa haldið því fram að þarna væri vitleysingur á ferð! Þegar hann er spurður að því hve lengi hann hafi átt hlut í Byr, svarar hann: Þessi hlutur í Byr er kominn til eftir að Byr verður til"
Ég gefst upp
Bloggar | 29.8.2008 | 21:38 (breytt kl. 21:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Plúsinn.is er fyrirbæri sem sendir mér stundum póst. Oftast til að reyna að fá mig til að kaupa Herbalife og telja mér í leiðinni trú um að ég geti orðið moldríkur á því, en stundum til að kanna afstöðu mína til ýmissa mála sem á þjóðfélaginu brenna.
Sem dyggur þjóðfélagsþegn tek ég yfirleitt samviskusamlega þátt í þessum skoðanakönnunum og oftast nær er ég nú ekki svo skyni skroppinn að ég skilji ekki hvað verið er að tala um, en í dag sendi Plúsinn mér könnun sem heitir radio útvarpskönnun! Það er nú alveg á mörkunum að ég skilji hvað það á að fyrirstilla...............einhver?
Bloggar | 29.8.2008 | 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Tenglar
Hótel
- Hotel Club
- Trip Advisor Umsagnir um hótel o.fl.
- Totalstay Oft góð tilboð
- GTA Hotels Oft góð tilboð
Eitt og annað
Ýmislegt
- Íslenska Beygingar o.þ.h.
- Deacon Blue
- You Tube
Það sem skiptir máli
- KHÍ
- U2
- Madness Þeir eru enn að!
- Liverpool Opinber síða félagsins
- Liverpool Liverpool klúbburinn á Íslandi
- Á móti sól
Flugfélög
Ferðalög o.þ.h.
- British Airways Flug til London Gatwick
- SAS Flug til Osló og Stokkhólms
- Icelandair
- Iceland Express
- German Wings Flug til Kölnar/Bonn o.fl.
England
Ferðalög o.þ.h.
- Flugvellir Flugvellir í Bretlandi
- Eurostar Hraðlest til Parísar og Brussel
- Virgin Trains Lestir út á land
- The Tube Lestarkerfið í London
- London Town London
- Map 24 Vegvísun um allan heim
- Ticketmaster Miðar á tónleika o.fl.
- St.Giles Hotel Frábær staðsetning - ágætt hótel
- Late Rooms Tilboð á gistingu
- Travel Inn Traust og fjölskylduvæn hótelkeðja
Danmörk
Ferðalög o.þ.h.
- Veðrið Veðrið í DK fyrr og nú, eftir svæðum
- Alt om Köbenhavn Allt um Köben
- Min reklame Tilboð frá verslunum
- Krak Vegvísun, kort o.fl.
- Dansk Autorent Ódýr bílaleiga
- Gisting á tilboði Hótel í Danmörku - Tilboð dagsins
- Dancenter Sumarhús í Danmörku og víðar
- Sol og Strand Sumarhús í Danmörku og víðar
- Dansommer Sumarhús í Danmörku og víðar
- Novasol Sumarhús í Danmörku og víðar
- Italiano Skemmtilegur ressi í Köben
Bloggvinir
-
nkosi
-
ansiva
-
atlifannar
-
skarfur
-
agustolafur
-
amotisol
-
baldurkr
-
bbking
-
bjarnihardar
-
brandurj
-
gattin
-
binnag
-
bryndisvald
-
brynja
-
bestfyrir
-
daxarinn
-
ebbaloa
-
austurlandaegill
-
eirag
-
hjolagarpur
-
ellasprella
-
eythora
-
ea
-
fjarki
-
gesturgudjonsson
-
dullari
-
gretar-petur
-
gudni-is
-
gudbjorng
-
hugs
-
gummigisla
-
gummisteingrims
-
bitill
-
gunnarfreyr
-
nesirokk
-
rattati
-
hehau
-
hermannol
-
krakkarnir
-
nabbi69
-
swiss
-
810
-
ingimundur
-
ingvarvalgeirs
-
jakobsmagg
-
presley
-
katrinsnaeholm
-
buddha
-
larahanna
-
maggib
-
magnusvignir
-
jabbi
-
palmig
-
rungis
-
snorris
-
slembra
-
lehamzdr
-
svanurg
-
sverrir
-
saedis
-
tinnhildur
-
tommi
-
postdoc
-
doddilitli
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar