Ég hef oft verið að spá í það hvaða kynnir í heiminum væri flottastur. Nú hef ég loksins komist að því. Samkvæmt auglýsingu sem ég heyrði á FM 957 áðan er Ryan nokkur Seacrest heitasti kynnir í heimi. Takk FM .
Bloggar | 18.6.2008 | 09:46 (breytt kl. 10:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 18.6.2008 | 09:35 (breytt kl. 09:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég ætla að halda áfram að röfla um verðmuninn á bensíni og díselolíu hér á landi. Lítrinn af díselolíu er nú u.þ.b. 17 kr. dýrari en bensínlítrinn og eins og ég talaði um í síðasta röfli þá er þar víst heimsmarkaðsverði um að kenna. Ég veit að þessi verðmunur er ekki séríslenskt fyrirbrigði, t.d. var verðmunurinn svipaður í Bretlandi síðast þegar ég vissi, en einhverjar þjóðir, t.d. Danir, hafa tekið það upp hjá sér að sporna við þessari þróun með aðgerðum af hálfu ríkisins. Í Danmörku er dísellítrinn enn heldur ódýarari en bensínlítrinn, svona eins og manni finnst að það eigi að vera.
Ég hef í 3 ár átt sparneytna díselbíla. Fyrst Skoda Octavia og síðan Volkswagen Touran. Þessir bílar eru mjög sparneytnir, eyða á við japanskan smábíl, en eru þrátt fyrir það fullbúnir fjölskyldubílar. Vegna stærðar sinnar eru þeir talsvert öruggari en japanskir smábílar, skyldi maður ætla a.m.k., og eins hef ég heyrt sérfræðinga halda því fram að þeir mengi minna en smábílarnir. Jafnvel álíka lítið og hybrid og prius og hvað þessir umhverfisvænu tískubílar heita. En nú er svo komið að það er tæpum þúsundkalli dýrara fyrir mig að fylla bílinn en fyrir Yaris-eiganda!
Ég hefði haldið að það væri af hinu góða fyrir íslenskt samfélag að sem flestir ættu örugga, sparneytna og umhverfisvæna bíla, að svo miklu leyti sem bíll getur verið umhverfisvænn , og mér skilst að það hafi dönsk stjórnvöld einmitt ályktað að væri gott fyrir danskt samfélag og þessvegna tekið völdin af hinu illræmda heimsmarkaðsverði og jafnað stöðuna milli díselolíu og bensíns. Um óákveðinn tíma, eða þar til jafnvægi næst á heimsmarkaði.
Megum við eiga von á því að íslensk stjórnvöld geri eitthvað í þessa veru? Tja........nei.
Stjórnmál og samfélag | 17.6.2008 | 08:26 (breytt 5.7.2008 kl. 21:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Danska blaðið BT greinir í dag frá 24 ástæðum fyrir því að Spánverjar verði Evrópumeistarar. Ég ætla að tína til nokkra punkta úr yfirferð blaðsins;
1. Gullkálfurinn Raúl er ekki með: Hann hefur verið í liðinu í 5 heims- og Evrópukeppnum og liðið hefur ekkert unnið í þau skipti.
2. Góður mórall í liðinu, m.a. vegna þess að Raúl er ekki með!
3. Þeir spila hraðan bolta: Ein ástæða þess að Aragones valdi ekki Raúl.
4. Þeir hafa Torres
11. Nokkrir þeirra eru vanir að spila í Bretlandi þar sem boltinn er hraðari og harðari.
14. Luis Aragones er snarruglaður; það hjálpar ef þú þjálfar Spánverja!
16. Þeir fá 650 þús. evrur á kjaft ef þeir vinna.
17. Þeirra lélegasti maður, Fabregas, er sá besti í arsenal

18. Þeir hafa spilað 15 leiki í röð án þess að tapa.
19. Þeir eru frábærir leikarar; David Villa, Luis Garcia og Diego Capel eru meistarar í að láta sig falla með tilþrifum!
23. Þeir njóta stuðnings Spánverja, Baska, Katalóna og Brasilíumanna.
24. Þeir njóta einnig stuðnings klámdrottningarinnar Luciu Lapiedra!
Bloggar | 12.6.2008 | 16:12 (breytt kl. 23:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Stjórnmál og samfélag | 9.6.2008 | 17:27 (breytt 5.7.2008 kl. 21:20) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bloggar | 4.6.2008 | 00:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Seyðfirðingar gæla nú við þá hugmynd að færa klukkuna hjá sér fram um tvo tíma á sumrin, til að njóta sólarinnar eilítið lengur. Ég veit nú ekki hvað mér á að finnast um það, get ekki alveg séð að það gangi upp að eitt svæði á landinu sé á allt öðrum tíma, en mér finnst frábært hjá þeim að vekja máls á þessu. Og óneitanlega ber það vott um áræðni að þora að stinga upp á slíku í fullri alvöru.
Ég hef reyndar lengi verið þeirrar skoðunar að við Íslendingar ættum að færa klukkuna framar, bæði að vetri og sumri. Það er að vísu ekki alveg kórrétt landfræðilega séð, en hér á landi eru aðstæður vissulega dálítið sérstakar og því hafa margir bent á að það væri fýsilegur kostur að sveigja aðeins milli tímabelta og stilla okkur t.d. saman við hinar norðurlandaþjóðirnar, sem eru einum tíma á undan okkur á veturna og tveimur á sumrin. Með því móti nytum við sólarinnar aðeins lengur á kvöldin og eins væri ekki verra að "tapa" ekki alltaf 1-2 klukkutímum þegar maður skreppur til Köben t.d. Í stuttum helgarferðum á vegum íslenskra ferðaskrifstofa og flugfélaga, sem oftar en ekki bjóða upp á tafir (og jafnvel krókaleiðir upp á síðkastið), er hver klukkustund dýrmæt .
Dægurmál | 3.6.2008 | 23:42 (breytt 5.7.2008 kl. 21:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | 3.6.2008 | 00:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er eins og Hvergerðingar séu aðeins seinni til en nágrannar þeirra þegar kemur að viðbrögðum við jarðskjálftanum. Ég þekki t.d. fólk sem hefur síðan á föstudagsmorgun reynt að finna út úr því hvert það á að snúa sér til að fá úr því skorið hvort skemmdir hafi orðið á húsnæði þeirra. Þessu fólki hefur verið vísað hingað og þangað hér í plássinu, en án teljandi árangurs. Í Árborg var svo að segja strax gefið upp símanúmer sem fólk í slíkum vandræðum gat hringt í og sveitarstjórinn í Ölfusi keyrði um sína sveit ásamt byggingafulltrúa að morgni föstudags og kannaði ástandið.
Búið var að rannsaka drykkjarvatn í Árborg og úrskurða það drykkjarhæft seinnipart laugardags. Ég veit ekki til þess að það sé búið hér. Það getur þó hafa farið fram hjá mér.
Íbúafundur var haldinn í Árborg í gær, sunnudag. Búið er að boða einn síkan í Ölfusinu á morgun. Ég veit ekki til þess að slíkur fundur hafi verið boðaður hér. Það er þó eins með fundinn og vatnið, ég þori ekki að fullyrða að ég hafi rétt fyrir mér. Enda kom ég svo vel undan skjálftanum að ég fylgist kannski ekki nægilega vel með til þess að vera að tjá mig opinberlega, en geri það nú samt .
Sé þetta rétt athugað hjá mér finnst mér það dálítið umhugsunarvert. Ég sé ekki að hér séu aðstæður neitt öðruvísi en í nágrannasveitarfélögum okkar, a.m.k. ekki svo að þær réttlæti að viðbrögð bæjaryfirvalda hér séu hægari og jafnvel ómarkvissari en annars staðar. Ég trúi heldur ekki að fjarvera bæjarstjórans, sem er svo óheppinn að vera erlendis í fríi, geti haft svo lamandi áhrif á aðra starfsmenn bæjarins. Jafnvel þótt Aldís sé dugmikill og röggsamur stjórnandi.
Sé þetta hinsvegar rangt athugað hjá mér biðst ég forláts.
Ég tek það fram að ég hef ekki yfir neinu að kvarta, ég er einungis að velta þessum hlutum fyrir mér. Ég hef heyrt ansi sterkar óánægjuraddir og mér finnst afar leiðinlegt að vita til þess að fólk sem hefur orðið fyrir einhverjum skaða fái ekki jafn góða þjónustu hér og annars staðar.
Sjálfum finnst mér alveg jafn gott að búa hér og áður og ekki hvarflar það að mér að hugsa mér til hreyfings þótt náttúruöflin skjóti manni skelk í bringu annað slagið .
Bloggar | 2.6.2008 | 20:14 (breytt kl. 21:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég veit vel að tæknilega byrjar vikan á sunnudegi, en ég leyfi mér samt að segja að það hafi verið góður endir á vægast sagt viðburðaríkri viku að horfa á íslenska landsliðið vinna glæsilegan sigur í Svíum í gær. Magni kom til okkar og horfði á leikinn með okkur og hafi hann verið raddlítill þegar hann kom, eftir 3 böll um helgina, var hann ennþá verri þegar hann fór! Svei mér þá ef ég var ekki orðinn tæpur líka . Tek ofan fyrir Guðmundi og strákunum, takk fyrir mig.
Það þarf kannski ekkert að ræða jarðskjálftana, en ég geri það nú samt. Ég var staddur í Grunnskólanum þegar skjálftinn kom, sat við tölvuna mína á efri hæðinni og verð að viðurkenna að mér leist ekkert á blikuna. Dreif mig út og beinustu leið heim, þar sem Auður stóð með símann í annarri og sjónvarpið í hinni! Við fyrstu sýn fannst manni allt í rúst, en þegar maður fór að litast um hjá öðru fólki hélt maður bara kjafti. Við sluppum ótrúlega vel.
Annað er svo sem ekki að frétta í bili.
Dægurmál | 2.6.2008 | 08:40 (breytt 5.7.2008 kl. 21:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Tenglar
Hótel
- Hotel Club
- Trip Advisor Umsagnir um hótel o.fl.
- Totalstay Oft góð tilboð
- GTA Hotels Oft góð tilboð
Eitt og annað
Ýmislegt
- Íslenska Beygingar o.þ.h.
- Deacon Blue
- You Tube
Það sem skiptir máli
- KHÍ
- U2
- Madness Þeir eru enn að!
- Liverpool Opinber síða félagsins
- Liverpool Liverpool klúbburinn á Íslandi
- Á móti sól
Flugfélög
Ferðalög o.þ.h.
- British Airways Flug til London Gatwick
- SAS Flug til Osló og Stokkhólms
- Icelandair
- Iceland Express
- German Wings Flug til Kölnar/Bonn o.fl.
England
Ferðalög o.þ.h.
- Flugvellir Flugvellir í Bretlandi
- Eurostar Hraðlest til Parísar og Brussel
- Virgin Trains Lestir út á land
- The Tube Lestarkerfið í London
- London Town London
- Map 24 Vegvísun um allan heim
- Ticketmaster Miðar á tónleika o.fl.
- St.Giles Hotel Frábær staðsetning - ágætt hótel
- Late Rooms Tilboð á gistingu
- Travel Inn Traust og fjölskylduvæn hótelkeðja
Danmörk
Ferðalög o.þ.h.
- Veðrið Veðrið í DK fyrr og nú, eftir svæðum
- Alt om Köbenhavn Allt um Köben
- Min reklame Tilboð frá verslunum
- Krak Vegvísun, kort o.fl.
- Dansk Autorent Ódýr bílaleiga
- Gisting á tilboði Hótel í Danmörku - Tilboð dagsins
- Dancenter Sumarhús í Danmörku og víðar
- Sol og Strand Sumarhús í Danmörku og víðar
- Dansommer Sumarhús í Danmörku og víðar
- Novasol Sumarhús í Danmörku og víðar
- Italiano Skemmtilegur ressi í Köben
Bloggvinir
-
nkosi
-
ansiva
-
atlifannar
-
skarfur
-
agustolafur
-
amotisol
-
baldurkr
-
bbking
-
bjarnihardar
-
brandurj
-
gattin
-
binnag
-
bryndisvald
-
brynja
-
bestfyrir
-
daxarinn
-
ebbaloa
-
austurlandaegill
-
eirag
-
hjolagarpur
-
ellasprella
-
eythora
-
ea
-
fjarki
-
gesturgudjonsson
-
dullari
-
gretar-petur
-
gudni-is
-
gudbjorng
-
hugs
-
gummigisla
-
gummisteingrims
-
bitill
-
gunnarfreyr
-
nesirokk
-
rattati
-
hehau
-
hermannol
-
krakkarnir
-
nabbi69
-
swiss
-
810
-
ingimundur
-
ingvarvalgeirs
-
jakobsmagg
-
presley
-
katrinsnaeholm
-
buddha
-
larahanna
-
maggib
-
magnusvignir
-
jabbi
-
palmig
-
rungis
-
snorris
-
slembra
-
lehamzdr
-
svanurg
-
sverrir
-
saedis
-
tinnhildur
-
tommi
-
postdoc
-
doddilitli
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar